Mont-montValey Sara Árnadóttir

langaði bara að monta mig aðeins... fékk að prófa krossara um daginn hjá Valda, sem er bróðir hans Björgvin. það var mjög gaman þrátt fyrir að ég hafi ekki þorað að skipta í 2. gír...svo ég lullaði bara í 1. gír á götunni og var alveg eins og einhver kjáni Skömmustulegur en það var amt svo gaman :)
reyndar var erfitt að hafa vald á því vegna þess að ég varla náði niður báðu megin á hjólinu, enda 96kg og fyrir fullvaxinn meðalstóran karlmann, nokkuð hraustann...en ég náði samt að rétta það við og halda því næstum beinu.

því miður er þetta hallærislegt blogg, ég get ekki sett inn myndir í bloggfærsluna nema þær séu online og þar sem hin síðan mín, þar sem ég var með allar myndirnar, opnast ekki (sörverinn er e-ð niðri og læti)Fýldur þá get ég ekki sett inn þá glæsilegu mynd sem er á desktoppinu mínu Svalur sem sagt ég á GASGAS hjóli, bláu og alles!!!!

nóg í bili, líður að æfingu fyrir ráðstefnu á laugardaginn.
sendið mér endilega *hraktuff* fyrir það svo ég standi mig nú....

*hraktuff* til ykkar hinna sem einnig koma fram.

mbk. Valey Sara
sem hefur meira en nóg að gera - náði samt að blogga!

ok..síđast tilraun!Valey Sara Árnadóttir

jæja....síðasta tilraun!

ég get alveg fengið nóg af þesari síðu, þegar ég skrifa inn þá koma stafirnir inn hálfri mínutu seinna og eins þegar ég stroka út, þá strokast annað hvort allt út eða ekkert. svo þegar ég nota hið venjulega ,,sjortkött" til að komast fremst í línuna...þá lendi ég því að fara á næstu síðu ég sem ég var á á undan þessari og allt bloggið eyðist!! ekki það sem mér finnst skemmtilegast Öskrandi

en ég ætla að gera eina tilraun í viðbót....
setja inn það sem ég stal af gelgjusíðu sem ég rambaði inn á, mjög gaman að skoða þær ef maður hefur gjörsamlega ekkert að gera.
það væri gaman ef ég fengi svör, ekkert skylda...bara smá tilbreytileiki í daginn Glottandi



Hvað er fullt nafn mitt?

Hvenær á ég afmæli?

Hvernig hittumst við ?

hvað fannst þér um mig þegar við hittumst?

Hvenær hittumst við seinast?

Hvernig myndir þú lýsa mér í 3 orðum?

Hvar á ég heima?

Höfum við kysst?

erum við góðir vinir?

hef ég treyst þér fyrir leyndarmáli?

á ég :
-dýr?
-barn? 
-ipod?
-bíl? 
-íbúð? 
-síma? (ef já hvað er nr. mitt - ekki kíkja í símaskránna!)

Hernig eru augun mín á litinn?

Höfum við farið á trúnó? 

Hefuru séð mig gráta?

höfum við farið í ferðalag saman?

höfum við farið á tónleika saman?

veistu við hvað ég vinn?

er ég í skóla?

hvaða líkamshluti á mér er sérstakastur?  

ef þú myndir festast með mér á eyðieyju í nokkra daga, hvaða tvo hluti myndir þú taka með?

ef ég myndi hringja í þig og biðja þig um að hitta mig og gera eitthvað, hvar myndum við hittast og hvað myndum við gera?

ef þú myndir koma mér á óvart hvað myndir þú gera fyrir mig ?

hvað er uppáhalds drykkurinn minn?

viltu að ég svari þessu líka fyrir þig ?


ég tók út spurnigar um uppáhalds - eitthvað sem ég get ekki einu sinni sjálf svarað...svo ég þurfi ekki að lata ykkur svara því...

en hafið það gott í fríinu á morgun Brosandi

Hl&aelig;jandi ==> Friðgeir! til hamingju með afmælið á morgun <== Hl&aelig;jandi


kveðjur frá Valeyju Söru sem er að fara í frí

p.s. síðasta tilraunin tókst :)

RaksápupáskaRValey Sara Árnadóttir

Senn líður að páskum.
Ég sit hérna heima á Bálkastöðum og þykist hafa þolinmæði til að hanga á þessu eilífðar-neti. Nei ekki það að það sé svo mikið á netinu að ég kalli það eilífðarnet, heldur vegna þess að það tekur heila eilífð að opna eina síðu! en þetta hefst allt saman fyrir rest, bara að stóla á þolinmæðina og þá kemur þetta allt saman, með heita vatninu hérna (sem er líka frekar lengi að hitna).
ég er búin að vera hérna síðan á föstudaginn að gefa fyrir mömmu og pabba, þau nefnilega skelltu sér bara til Parísar í bændaferð. Mér finnst það bara fínt hjá þeim, fá sér smá upplyftingu, hefði bara viljað fara með. Langar að fara til útlanda, það er alltaf gaman.

En Tóti byrjaði að hjálpa mér, hann kom hérna á fimmtudags kveldinu og fór aftur á sunnudags kveldi. svo var ég svo heppin að Björgvin var í fríi á mánudag og þriðjudag og hann skellti sér bara hingað vestur til að hjálpa mér. Ekkert smá ánægð ég
Svo ég svaf bara ein í fyrsta skipti í gærkveldi.

Úff, ég sé eftir því að hafa ekki prófað að setja á mig blóðþrýstingsmælinn frá m&p. Ég er svolítið myrkfælnari en ég hélt.
Ég söng hástöfum bara ein hérna inni, og svo hrökk ég í kút, það var eitthvað srkítið hljóð frammi í þvottahúsi. Ég læddist fram og kíkti...þá var þetta bara Týra að ,,syngja" með mér, hún syngur mjög oft með manni. Svo fer ég inn og bíð eftir að þvottavélin klári en þá allt í einu....hringir síminn! og mér brá pínulítið. þá var það bara Björgvin að láta mig vita að hann væri kominn heim. Þegar við erum búin að tala þá legg ég á og þá hringir síminn aftur og ég get ekki svarað í hann, það kemur bara sónn en hann heldur áfram að hringa, svo ég skutlast inn í tölvuherbergi og svara, þá eru þetta bara mamma og pabbi að ath hvort það sé ekki allt í orden. svo klárast þvottavélin og ég get ekki slökkt neitt ljós nema að vera buin að kveikja annað, mjög kjánalegt allt saman. svo þegar ég kem upp í herbergi og bý mig undir að leggjast upp í rúm, fer ég allt í einu að hugsa um öll kjánalegu skrímslin sem voru í gamla herberginu mínu þegar ég var lítil, en að hugsa að þau væru kjánaleg, var eiginlega ekkert betra, ég varð bara hræddari. ég reyndi að lesa og hugsa ekki um Djandaweed (var s.s. búin að horfa á Blood Diamonds á mánudaginn og fékk hræðilega martröð) en það gekk ekkert, ég heyrði í hinum og þessum verum hér og þar í kringum mig, reyndi að stilla útvarpið hennar mömmu þannig að ég mydni heyra í því bara við koddann, en það surgaði svo mikið í því og þá fór ég að hugsa um White Noise, svo ég varð bara ennþá hræddari, talandi um að vera smá klikkaður!

en að lokum náði ég að troða útvarpinu í eyrun á surgs, sko heyrnatólunum - ekki útvarpinu heilu, og sofnaði svo, ábyggilega með mjög fast lokuð augun, því þegar ég vaknaði í morgun var mér illt í augunum.

en nóg af myrkfælni.
vona þetta vaxi upp af mér.

Valey Sara
- Myrkfælna Bóndastelpan.

FRÁBĆRT AFMĆLIValey Sara Árnadóttir

Á laugardaginn héldum við Björgvin upp á fertugsafmæli, að sjálfsögðu erum við ekki svona gömul heldur slógum við saman í sameiginlega veislu, 2x20 ára veislur. Fyrir þá sem ekki vita þá á ég afmæli tí-mass og Björgvin á afmæli 25. apríl.

Veislan í stuttu máli:
- Við leigðum XD salinn, þetta var þó ekki pólitískt afmæli
- Við elduðum mat fyrir nánustu fjölskyldu meðlimi, sem sagt foreldra, systkini og maka
   þeirra.
    - Mamma, Sóley Lára og Helga: takk fyrir alla hjálpina
    - Þórey Arna, Valgeir og Elma Hlín: við söknuðum ykkar
- Seinna var kaffi, og þá bættust við fjölskyldu-vinir.
- þá næst mættu gestir, þeir fengu kökur og fleira sem við buðum upp á, einnig var girnileg blá bolla sem fékk á tímibili þá merku uppfinningu þurrís - og þá fór allt á skrið, bókstaflega!
- Það var mjög gaman um kvöldið (og nótttina) og við erum mjög sátt, ekkert vesen eða neitt, nema að kvartað var undan hávaða! sem þótti mjög grunsamlegt þar sem enginn er nálægt nema 10-11 sem er fyrir neðan og það virtist ekki vera nema svo að þeim hefði ekki getað verið meira sama. Nema einhver hafi verið að gera grín í okkur - þetta verður sennilega dularfull ráðgáta það sem eftir er - ....tja.... nema einhver gefi sig fram???
- Einnig fengum við fullt af pökkum og erum við mjög þakklát fyrir þá alla! ef þið viljið fá nánari upplýsingar komið þá bara í heimsókn, ég treysti mér ekki til að muna þetta allt.
- Við tókum fullt af myndum og kannski set ég inn myndir.... það er að segja ef ég læri það einhvern tímann hehe


en nóg í bili!
Auf wiedersehen
Valey Sara


Til Ađ Byrja Međ....Valey Sara Árnadóttir

Ætli maður hætti þá ekki að vera anti-bloggari.

Ég hef samt ærna ástæðu til þess að hætta að vera anti-bloggari. Þannig er nefnilega mál með vexti að nú fer senn að líða að skilnaði við það frábæra fólk sem maður er búinn að sitja með á skólabekk síðastliðin 4 ár. Að sjálfsögðu hefur maður bundist þeim tilfinningaböndum, í það minnsta langar mig að halda sambandi við þetta fólk áfram en ef það hefur ekki áhuga á því verður það bara að vera svoleiðis. Tíminn í dag líður svo hratt og enginn hefur tíma fyrir símann nema þá að svara leiðinlegum Gallup-spurningum, og þess vegna er gott að hafa svona síðu svo fólk geti kannski fylgst með manni, það er að segja hafi það nokkurn áhuga á því.

Ég ábyrgist ekki að ég muni skrifa hér inn vikulega eða oftar, þetta verðu meira svona viðburðar-blogg, það er að segja ef eitthvað skemmtilegt eða merkilegt (að mínu mati) gerist.

Læt þetta duga í bili

Valey Sara - nýgræðingabloggari

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Valey Sara Árnadóttir
  • Stađur: Er í sveitinni
  • Heimilisfang: 101 Sveitin
  • Atvinna: Sveitastelpa :oP

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur