Nú verđa sagđar fréttirValey Sara Árnadóttir

dinga-linga-búmm

góðan dag.
nú verða sagðar fréttir.
Það gerðist nú rétt fyrir fréttir á sunnudaginn að lítil kisa hafi sett inn færlsu á síðuna sína, ásamt nokkrum myndum.
Ekki virðast vera nein vitni að þessum atburði, en þeir sem hafa einhverjar upplýsingar mega láta vita í síma 865-6548 hjá lögreglunni í víðilundi.

veðurhorfur á landinu, næstu daga
úrkoman verður ekki í Grennd, þau voru búin að fá nóg og sendu hana til Jan Mayen. Mikill hiti, óhæft að vera í buxum nema karlmaður sé, bjráluð sól verður í keðjum til að stilla veðrið.

þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni.
Verið þið sæl

HVAĐ ER ŢAĐ SEM SKIPTIR OKKUR MÁLI Í LÍFINU??Valey Sara Árnadóttir

ég hef verið að velta því aðeins fyrir mér, hvað er það sem skiptir okkur mestu máli í lífinu?
ekki bara í dag, að mig langi klikkað mikið í ís núna eða grillað kjöt.
heldur hvað mig langar að gera til að mér líði vel í lífinu alltaf, ekki bara í dag.
jú að sjálfsögðu koma dagar sem eru erfiðari heldur en aðrir, þrátt fyrir að hafa enga ástæðu fyrir því.

Ég hef velt fyrir mér hvað það er sem gerir mig ánægða í lífinu.
Það er að eiga aðstandendur sem ég veit að ég get leitað til, og ég vona að  þeir viti að þeir geta leitað til mín þegar þeir vilja - sama hvenær sólarhringsins það er. Ég vil vera til staðar fyrir mína vini og vandamenn!

Að eiga húsaskjól og nóg fyrir mat, að geta fengið að borða í hvert mál, þótt ekki sé nema stundum bara pakka-núðlur. En þær eru ágætar inn á milli.

Að eiga pening til að geta leyft mér stundum einhvern munað, t.d. fara út að borða, kaupa eitthvað gott að borða og bjóða einhverjum í mat. geta keypt mér föt eða skart sem, útaf einhverri óútskýranlegri ástæðu, lætur manni líða vel (skil þetta ekki - en þið hinir kvennmenn??)

En þegar við komum að þessari ástæðu til að láta mér líða vel....föt, skart, skór
Allt er þetta ómissandi í lífi hins venjulega kvennmanns í vesturlöndum. Ég er þá ekki að vera með neina fordóma gagnvart öðrum konum annars staðar í heiminum, alls ekki, Bara vesturlöndin standa að jafnaði aðeins betur fjárhagslega heldur en í austurlöndum eða hvað þá þeim í vanþróaðri ríkjum.
og þá kemur það sem ég hef verið hvað mest að velta fyrir mér
hvort líður mér betur ef ég kaupi fínar buxur, svartar til að vera í vinnunni, í hagkaup á kannski 7000kr. eða í Rexín eða dýrari verslun á að lágmarki 10.000kr??
og hvort líður mér betur ef ég kaupi buxur með einhverju frægu merki eða bara einhverju merki??
Ég veit það fyrir víst að mér persónulega líður miklu betur að kaupa buxurnar í Hagkaup. Því þær eru ódýrari og ég fæ ekki eins mikið samviskubit yfir því ef eitthvað kemur fyrir þær og það er ekki eins sárt að fitna eða grennast í þær - það er ekkert mál að skipta þeim út.

En ef öðrum kvennmönnum finnst nauðsynlegt að vera í einhverjum (rán)dýrum merkjavöru fötum, þá er það fínt fyrir þær.
En mér finnst virkilega dónalegt að þessar típur skuli vera með hálfgerð leiðindi út í þann sem ekki vill (eða hefur ekki endilega áhuga eða peninga) kaupa sér þetta dýra merki.

ég veit að Dior er frægt og dýrt merki
ég gef mér ekki að hafa efni á því (vil frekar eyða mínum pen í annað)
en hvers vegna á ég að fá eitthvað ,,ó...áttu svona" fyrir það sem ég á, því það er ekki t.d. Dior??

ég bara spyr - ,,rodger"
yfir og út

Valey Sara - sem skilur ekki alveg út á hvað merkjafríkur lifa Glottandi


Ör-bloggValey Sara Árnadóttir

bara nokkur komment - mikið að gera í dag

- kíkið á www.ninukot.is og skoðið -work&travel- og svo undir Ástralía
við Björgvin erum að hugsa um að fara þangað og ég skrifa það hingað inn svo ég hætti síður við - sem sagt er búin að segja of mörgum það svo ég hætti við :S vonandi ;o)

- Fella Mjásalín Stækkar og stækkar, hún er algjört krútt og er mjög virk í að leika sér. henni fannst mjög gaman að fara í Bálkastaði um páskana og hitta hana Týru - var samt ekkert of hrædd við hana. mjög gaman líka að leika við Elmu Hlín og smá vont þegar Elvar Hrafn togaði í skottið hennar. Ég er meira en hrikalega ódugleg að setja inn myndir af  henni - það fer að gerast - vonandi í þessari viku, það eru komnar svo margar :o)

- Ég er að fara heim næstu helgi að vera kynnir á vortónleikum hjá karlakórnum Lóuþrælum. verður vonandi mjög gaman.

- helgina þar á eftir ætla Sóley Lára og Birkir og Co. (fyrir fylgifiska) að koma norður og gista í íbúðinni minni, ég og Björgvin flytjum bara í Grænumýrina á meðan :o)

- held ég hefi ekki fleir að segja í bele - við hittumst heil *klikk*  (tilvitnun í Bólu)

Valey Sara - súperduglega á netinu ;D - not

NOHH....Valey Sara Árnadóttir

úff - það eru s.s. alveg heilir 3 sem nenna að lesa þetta blogg Brosandi
ánægð með að einhver gerir það - en það eru náttla ekki allir sem skrifa blogg sem eru opin, þau eru læst með leyniorði sem þau segja fáum eða jafnvel engum. Það var einmitt að koma í fréttunum um daginn að þetta er einskonar sálfræði hjálp, fólki sem líður illa finnst gott að geta komið hlutunum frá sér hvort sem einhver les það eða ekki.
mér finnst bara gaman að skrifa svona einstaka sinnum inn - er samt ekkert að gera neitt skemmtilegar færslur - er ekki nógu fyndin. enda er þetta eins og sagt var fyrst - bara viðburðarblogg.
t.d. hefur einn viðburður gerst núna, en það var árshátíð Landsbankans.
það var mjög gaman, fórum suður og leyfðum okkur að gista á hóteli, nánar tiltekið fyrir ofan broadway ;o)
fór til Sóleyjar Láru systur í förðun og greiðslu og fannst það mjög fínt og var alveg  rosalega ánægð Hlæjandi takk Sóley Lára
svo fékk ég lánað hálsmen og armband, undirkjól og veski hjá henni Dódýju frænku Hlæjanditakk Dódý
og svo var ég í kjól af henni Þóreyju Örnu systur Hlæjandi takk Þórey Arna
og ermum af henni Lindu (mágkonu Sóleyjar Láru) Hlæjandi takk Linda

svo átti ég skóna sem ég var í - nýkeyptir í Mössubúð, og nærfötin
svo ég var vel styrkt af nákomnum vinum og ættingjum. En þetta var mjög gaman og var í fyrsta skipti sem ég hef komið til USA - Los Angeles, en salnum var skipt upp í 4 lönd, París, Los Angeles, Kína og Spán. t.d. var bara hægt að fá Mohito á Spánarbarnum - mjög skemmtilegt.

svo get ég sagt annað skemmtilegt - eða ekki, og svona til þeirra sem eiga hlut að máli. Takk fyrir að mæta í saumaklúbbinn hjá mér - og láta vita hvort þið kæmuð eða ekki....

en jæja - það er nóg í bili, bara 3 vinnudagar og svo páskafrí Svalur ooohh..hlakka geggjað til
well heyrumst eða sjáumst
Valey Sara - sem getur varla beðið eftir að kaupa stærsta páskaegg sem hún hefur séð!!!

VANDRĆĐALEGT!!!!Valey Sara Árnadóttir

endilega segið mér hvað ykkur finnst vera vandræðalegt...
það þarf ekki endilega að vera eitthvað sem þið sjálf hafið lent í - bara eitthvað sem  ykkur finnst vera vandræðalegt, eða dreymir martraðir um að lenda í.

ég get sagt ykkur hvað mér finnst vandræðalegt.... læknar!
jú - vegna þess að þeir láta mér líða illa. Það er ekki að mér líði illa að fara til læknis, alls ekki. mér finnst það bara gaman og það er líka gaman að fara til tannlæknis. Ekki misskilja mig þó að það sé eitthvað húrra jeijj að fara til læknis - því yfirleitt er eitthvað að manni, annars fer maður ekki til læknis...nema maður sé óléttur.
En þetta er aðeins svona út úr dúr (er þetta kannski allt saman eitt orð eða 2 orð...eða svona??). Málið með það að læknar láta mér líða illa er það að ég er með eitthvað í löppinni minni sem ég veit ekki hvað er og enginn læknir heldur.

ok ég veit þetta hljómar flókið og mér gengur illa að koma þessu frá mér skrifuðu.
En málið er það að ég hef farið til bæklunarlæknis, farið í svona ómskoðun (minnir að það heiti það, fer inn í hring (ekki eins og er oft í læknamyndum svona hólkur - heldur bara hringur)). ég hef farið til heimilislæknis og sitthvað fleira. Mamma fékk alltaf að heyra hvað hún væri móðursjúk - er það ekki skemmtilegt?? Fýldur -- Nei ég efa það stórlega.

ég get sagt ykkur núna hvað það er sem lætur mér líða illa. Fyrir utan það að mér verður á einhvern óútskýranlegan hátt illt í löppinni, þá verð ég hölt. Ég á erfitt með að lyfta löppinn þar af leiðandi eru stigar mínir verstu óvinir, löppinn á erfitt með að halda mér ein (s.s. ef hún hefur ekki stuðning hinnar þá gefu hún sig og ég gæti fallið kylliflöt - mjög skemmtilegt Skömmustulegur)

svo lendi ég í því ef ég hef ekki farið nógu varlega að ég verð þreytt í löppinni, og finn ekki fyrir því fyrr en ég er komin af stað í vinnunna, ég finn ekkert fyrir því meðan ég er bara inni. Bara strax niðri á ljósunum fyrir neðan blokkina okkar byrja ég að stífna, og svo verð ég að gjöra svo vel að klára ferðina, ekki fer maður að panta sér leigubíl fyrir svona stutta ferð. svo mætir maður alltof alltof seint í vinnunna því maður getur víst ekki ,,gefið í" þegar maður er svona. Þegar maður loksins mætir í vinnunna spurja allir
,,hva - varstu í fótbolta?"
,,hva- varstu að snúa þig?"
,,hva- hvað kom fyrir þig?"

og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér finnst erfitt að svara ,því ég VEIT EKKERT HVAÐ ER AÐ MÉR!!!!

þetta er það sem mér finnst vandræðalegt og mér líður mjög illa yfir þessu.

veit þetta var ógeðslega löng færsla og ekkert merkilegt í henni, en þeir sem hafa nennt að lesa hana endilega megið segja mér hvað ykkur finnst vandræðalegt... þ.e.a.s. ef þið nennið því...

Valey Sara - sem langar heim að skæla yfir hlutunum sem hún ræður ekki við Gráta

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Valey Sara Árnadóttir
  • Stađur: Er í sveitinni
  • Heimilisfang: 101 Sveitin
  • Atvinna: Sveitastelpa :oP

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur